Að vanda gefur Reykjavíkurborg öllu starfsfólki borgarinnar jólagjöf og þetta árið hefur starfsfólk kost á að velja milli þriggja gjafa.
Við biðjum starfsfólk um að velja hvaða gjöf það óskar eftir að fá fyrir lok dags 18. nóvember næstkomandi.
Svo jólaverkstæðið nái að ganga frá pökkum og afhenda tímanlega fyrir jól er mikilvægt að starfsfólk hafi valið gjöfina sem það óskar eftir fyrir tilsettan tíma. Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að tryggja afhendingu jólagjafa fyrir það starfsfólk sem sendir ekki inn sitt val fyrir tilsettan tíma.
Borgarleikhúsið
Veldu skemmtilega kvöldstund í jólapakkann þinn. Stórsýningarnar Moulin Rouge og Galdrakarlinn í Oz verða á Stóra sviðinu í vetur. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar verður á sínum stað ásamt Hamlet og La bohème. Mömmó og Niflungahringurinn mæta á nýja sviðið ásamt fleiri góðum. Það verður eitthvað fyrir öll í Borgarleikhúsinu í vetur.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Gjafakort Sinfóníuhljómsveitar Íslands veitir aðgang að fjölda spennandi tónleika þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi; hátíðlega Vínartónleika á nýju ári, fjölskyldutónleika, E.T., ýmis fleiri verk og áhugaverða tónleika. Gjafakortið er ótímabundið og rennur ekki út. Fáðu upplifun í jólapakkann!
Ylströndin Nauthólsvík
Ylströndin í Nauthólsvík er paradís í borgarlandinu og frábær útivistarkostur í pakkann þinn, hvort sem þú vilt flatmaga á gylltri strönd á sólskinsdögum eða skella þér í sjósund um hávetur. Í Nauthólsvík er að finna þjónustumiðstöð með búnings- og sturtuaðstöðu fyrir baðgesti auk veitingasölu og grillaðstöðu. Fyrir framan er löng setlaug sem er um 38°C heit. Í flæðarmáli strandarinnar er uppstreymispottur til hitunar á lóninu og einnig er að finna eimbað á Ylströndinni. Gjafakortið gildir í 6 mánuði og hægt að virkja það þegar þér hentar. Sérlega hressandi jólagjöf!
<aside> 🎁
</aside>
Kveðja,
Þínir vinir í borginni 💚