Afleggjarinn er átta vikna skapandi lærdómsvettvangur þar sem markmiðið er að veita betri og aðgengilegri þjónustu til íbúa borgarinnar og einfalda líf starfsfólks.
Í Afleggjaranum þróum við lausnir sem hjálpa okkur að vinna snjallar, spara tíma og peninga og leysa áskoranir hraðar. Markmiðið er að veita betri og aðgengilegri þjónustu til íbúa borgarinnar og einfalda líf starfsfólks.
<aside> <img src="https://prod-files-secure.s3.us-west-2.amazonaws.com/fed05185-6432-4f96-b15f-a53bba1a2164/cb31f8cd-3f80-4ce2-8585-56dbd615e289/image.png" alt="https://prod-files-secure.s3.us-west-2.amazonaws.com/fed05185-6432-4f96-b15f-a53bba1a2164/cb31f8cd-3f80-4ce2-8585-56dbd615e289/image.png" width="40px" /> Afleggjarinn hefst 7. október 2026! Smelltu hér til að sækja um
</aside>
Afleggjarinn er vettvangur hjá Reykjavíkurborg til að læra þjónustuhönnun. Í stuttu máli gengur hugmyndafræði þjónustuhönnunar út á að þjónusta sé hönnuð með þarfir þeirra sem nota hana í huga. Til þess er ýmsum aðferðum beitt sem eru öðruvísi en hin hefðbundna leið sem oft er farin í opinberri stjórnsýslu.
Svona virkar þetta:
Þátttakendur koma með sína eigin áskorun, eitthvað sem tengist þeirra daglega starfi. Teymið vinnur saman að lausn í átta vikur sem hægt er að nýta áfram og innleiða á þeirra starfsstað. Afleggjarinn fer fram á hefðbundnum vinnutíma svo mikilvægt er að fá heimild frá stjórnanda áður en sótt er um.
Aðeins fimm teymi komast að í hvern Afleggjara!

„Mjög góð. Það er frábært að borgin geti boðið upp á þetta form við úrslausn verkefna og hugmynda.“
„Þetta var ómetanleg reynsla sem ég er mjög þakklát fyrir. Þetta var lærdómsríkt og gagnlegt. Ég hef líka alltaf lært betur með raunverulegt verkefni í höndunum og þótt ég hafi verið farþegi í slíku verkefni áður, hef ég ekki náð að tileinka mér eða læra jafn mikið og núna.“
„Frábær. Virkilega áhugaverðir fyrirlesarar og flott verkfæri sem við fengum í verkfærakistuna.“

Fyrir allt starfsfólk borgarinnar. Gott er að vera með áskorun í huga sem er metnaður og áhugi fyrir að tækla.

Fyrir 3 manna teymi. Við höfum öll ólíka styrkleika. Öflugustu teymin eru samsett af fjölbreyttu starfsfólki af hverri starfsstöð.

Fyrir þau sem hafa vilja og getu til að taka þátt. Áhugi á að læra og prófa eitthvað nýtt er lykilatriði. Mikilvægt er að þátttakendur fái rými til að sinna þessu verkefni meðfram vinnu sinni.

Við trúum því að við lærum mest á því að gera. Afleggjarinn er einstakt tækifæri fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar til að læra nýjar aðferðir sem þau geta strax byrjað að beita í sinni vinnu.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er leiðandi á Íslandi í þjónustuhönnun og hefur einnig vakið athygli erlendis fyrir að beita notendamiðaðri nálgun í opinberri stjórnsýslu. Við viljum gefa starfsfólki allstaðar í borgarkerfinu tækifæri til að læra þessa aðferðafræði og þannig færa þjónustu borgarinnar nær íbúum.
Þátttakendur útskrifast sem leiðtogar í þjónustuumbreytingu og fá plagg því til staðfestingar. Það er von okkar að í kjölfarið geti þátttakendur deilt þekkingu sinni áfram og verið boðberar notendamiðaðrar nálgunar á sinni starfsstöð.
Afleggjarinn er skráð námskeið á Torginu, og fá þátttakendur alla viðveru skráða í gegnum Torgið, fræðsluvef borgarinnar.
Þegar þú hefur lokið Afleggjaranum munt þú:
Búa yfir verkfærum og aðferðum til að tala við íbúa og fá endurgjöf á þjónustuna sem þú veitir.
Hafa skilning á hvernig hugmyndir geta orðið að veruleika á stuttum tíma.
Kunna að tækla áskoranir sem koma upp í vinnunni þinni og vita betur hvernig á að takast á við óvissu.
Geta beitt skapandi nálgun í opinberri stjórnsýslu.
Skilja hvað þú þarft til þess að þjónustuumbreyting geti átt sér stað á þínum starfsstað.